top of page
Pierre Graffeuille Odysseé 2019

Pierre Graffeuille Odysseé 2019

Pierre Graffeuille & Matthieu Dumarcher Odyssée 2019

 

Mjög sérstakt franskt rauðvín sem sameinar tvö af frægustu vínhéruðum Frakklands, Bordeaux og Rhône. Odyssée er samstarfsverkefni Pierre Graffeuille, sem starfaði lengi hjá Château Léoville Las Cases og síðar Château Montrose, og Rhône-víngerðarmannsins Matthieu Dumarcher.

2019 er 55% Cabernet Sauvignon frá Médoc, 25% Grenache og 20% Mourvèdre frá Rhône. Cabernet-vínviðurinn er um 50–60 ára en Rhône-vínviðurinn 60–70 ára; vínin eru gerð sitt í hvoru héraðinu og síðan blönduð saman í Rhône. Framleiðslan er mjög lítil, aðeins um 9.230 flöskur, og ræktunin er lífræn.

Vínið er kraftmikið en fágað með sólberjum, brómberjum og plómum, ásamt kryddi, lakkrís, dökku súkkulaði og garrigue-jurtum. Fín og mjúk tannín, góður ferskleiki og langt kryddað eftirbragð.

Einkunnir 2019:
94 stig – James Suckling
94 stig – The Wine Independent / Lisa Perrotti-Brown
93 stig – Decanter / Georgie Hindle
93 stig – Jane Anson MW

    7.950 kr.Price
    Quantity
    Product Page: Stores_Product_Widget
    • Facebook
    • Twitter
    • LinkedIn

    ©2021 by USA VÍN. Proudly created with Wix.com

    bottom of page