Castello Di Monsanto Chianti Classico Riserva 2021
Castello di Monsanto Chianti Classico Riserva 2021
Klassískt og vandað Chianti Classico Riserva frá Toscana, framleitt af Castello di Monsanto, sem hefur gert þetta vín frá árinu 1962. Vínið er byggt á Sangiovese ásamt litlu magni af Canaiolo og Colorino.
Gerjun fer fram í hitastýrðum stáltönkum í 18–20 daga. Vínið þroskast síðan í um 18 mánuði, að hluta í stórum 3.800 lítra eikartunnum og að hluta í notuðum tonneaux, og loks í sex mánuði á flösku.
2021 er sérstaklega vel heppnaður árgangur; vínið er fágað og djúpt með kirsuberjum, plómum, blómum, kryddjurtum, bergamot og grafít, góðri sýru og þéttum en fáguðum tannínum. Það er þegar mjög gott en ætti jafnframt að þróast fallega í kjallara.
Einkunnir 2021:
95 stig – Decanter
95 stig – James Suckling
95 stig – Wine Spectator
94 stig – Wine Enthusiast
94 stig – Vinous
92 stig – Robert Parker's Wine Advocate

